Nýjast á Local Suðurnes

Eldgos hafið – Virðist vera nærri Hagafelli

Eld­gos er hafið á Reykja­nesskaga að því er virðist á svipuðum slóðum og áður. Gosið virðist vera við Hagafell, fyrir ofan Grindavík.

Lögregla hefur sent frá sér tilkynningu hvar fólk er beðið um að yfirgefa Grindavík strax, en ekki um Grindavíkurveg.

Tilkynning frá lögreglu:

Við viljum óska eftir því að ökumenn teppi ekki vegi og skapi með því óþarfa hættu með að stöðva á akbrautum og í vegköntum.
Þetta er afskaplega mikilvægt! Höldum vegum opnum þannig að fólk geti rýmt svæðið og viðbragðsaðilar komist til og frá!

Fréttin verður uppfærð

mynd: Vefmyndavél mbl.is

mynd: Jakob Gunnarsson
mynd: Jakob Gunnarsson
Seð frá Innri Njarðvík
Séð frá Ásahverfi
Mynd: Jakob Gunnarsson
Séð frá Innri Njarðvík