Nýjast á Local Suðurnes

5G í boði í Sandgerði

Símafyrirtækið Nova býður nú upp á 5G netþjónustu í Sandgerði, en fyrirtækið hóf prófanir á 5G búnaði í febrúar á síðasta ári. Opnað var fyrir þjónustuna nýlega og er Sandgerðishverfi í Suðurnesjabæ eitt fyrsta svæðið á landinu hvar þessi þjónusta er í boði.

Á vef Nova kemur fram að markvisst sé unnið að því að stækka þjónustusvæðið þar sem þörf er á aukinni afkastagetu.