Nýjast á Local Suðurnes

Einar nýr framkvæmdastjóri FMS – Ragnar og Þórður hætta eftir áratuga starf

FMS hf hefur ráðið Einar Guðmundsson sem nýjan framkvæmdastjóra félagsins. Hann tekur við starfinu af Ragnari H. Kristjánssyni þann 31. janúar næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu, sem rekur fiskmarkaði víða um land.

Einar er fæddur og uppalinn í Bolungarvík á Vestfjörðum og hefur víðtæka reynslu af sjávarútvegi. Hann kemur til FMS úr starfi framkvæmdastjóra hjá Norðanfiski á Akranesi en þar áður var hann framkvæmdastjóri fiskeldisfyrirtækisins Hábrúnar í Hnífsdal. Þar áður starfaði hann sem skipstjóri í áratug og rak útgerð ásamt fjölskyldu sinni í Bolungarvík. Þá er hann útskrifaður viðskiptafræðingur úr Háskólanum á Bifröst. Einar er rúmlega fertugur að aldri og er búsettur í Garðabæ ásamt maka og þremur börnum.

Ragnar H. Kristjánsson lætur af störfum að eigin ósk eftir að hafa gegnt stöðu framkvæmdastjóra FMS í 22 ár, en hann hafði þar áður starfrækt fiskmarkað í Hafnarfirði í átta ár og því verið í fiskmarkaðsumhverfinu síðan 1992. Á sama tíma lætur einnig af störfum Þórður M. Kjartansson, skrifstofustjóri FMS til 22 ára, einnig að eigin ósk.