Nýjast á Local Suðurnes

Auknar smitvarnir á HSS – PCR próf skilyrði sé fólk með einkenni

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja bendir skjólstæðingum á að auknar smitvarnir eru í gildi á stofnuninni. Tilkynning HSS í held sinni:

Covid smitvarnir á HSS
Það er grímuskylda á HSS. Við minnum á handþvott og handspritt. Fækkum fylgdarmönnum, höldum fjarlægð og styttum tíma sem dvalið er á stöðinni.

Fólk með kvefeinkenni á að fara í PCR einkennasýnatöku og vera komið með niðurstöðu áður en komið er á heilsugæsluna.

Einkennasýnataka er pöntuð á Mínum siðum á heilsuvera.is. Gera má ráð fyrir að niðurstöður berist innan 24ja tíma.

Ekki dugar að taka heimapróf, sjálfpróf eða hraðpróf.

Þau sem eru með kvefeinkenni og það veik að ekki er hægt að bíða eftir niðurstöðum úr PCR prófi, verða að hringja á undan sér á heilsugæsluna og fá nánari leiðbeiningar

Við biðjum skjólstæðinga að virða þetta og ekki koma með pestareinkenni á heilsugæsluna án þess að hafa samband áður.

Það er samstarfsverkefni okkar allra að verja starfsemi heilsugæslunnar.