sudurnes.net
Auknar smitvarnir á HSS - PCR próf skilyrði sé fólk með einkenni - Local Sudurnes
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja bendir skjólstæðingum á að auknar smitvarnir eru í gildi á stofnuninni. Tilkynning HSS í held sinni: Covid smitvarnir á HSS Það er grímuskylda á HSS. Við minnum á handþvott og handspritt. Fækkum fylgdarmönnum, höldum fjarlægð og styttum tíma sem dvalið er á stöðinni. Fólk með kvefeinkenni á að fara í PCR einkennasýnatöku og vera komið með niðurstöðu áður en komið er á heilsugæsluna. Einkennasýnataka er pöntuð á Mínum siðum á heilsuvera.is. Gera má ráð fyrir að niðurstöður berist innan 24ja tíma. Ekki dugar að taka heimapróf, sjálfpróf eða hraðpróf. Þau sem eru með kvefeinkenni og það veik að ekki er hægt að bíða eftir niðurstöðum úr PCR prófi, verða að hringja á undan sér á heilsugæsluna og fá nánari leiðbeiningar Við biðjum skjólstæðinga að virða þetta og ekki koma með pestareinkenni á heilsugæsluna án þess að hafa samband áður. Það er samstarfsverkefni okkar allra að verja starfsemi heilsugæslunnar. Meira frá Suðurnesjum110 íbúðir rísa við FramnesvegFlugstöðin ræður ekki við tollskoðun og forvottun vegna BandaríkjaflugsSuðurnesjamær ein af „bestu flugfreyjum heims“Þrjú handtekin á harða sprettiKallaður útlendingatari fyrir að halda hitafund í VS á íslensku – Bauð túlka þó velkomnaFjölga þarf landamæravörðum á KeflavíkurflugvelliSafna undirskriftum vegna breytinga á leiðakerfi strætóBæjaryfirvöld líta málið [...]