Nýjast á Local Suðurnes

Almennir lögreglumenn fóru vopnaðir í útkall

Lögreglan á Suðurnesjum var kölluð að verslun Nettó við Krossmóa í Reykjanesbæ upp úr klukkan níu í kvöld eftir að tilkynning barst um að fjórir ölvaðir menn, vopnaðir riffli með kíki, væru við verslunina. Vegna alvarleika tilkynningarinnar munu almennir lögreglumenn hafa vopnast og haldið á vettvang, samkvæmt frétt á Vísi.is

Málið var á misskilningi byggt og reyndust mennirnir sem tilkynnt var um einungis vera með veiðistöng og var enginn handtekinn vegna þessa.