Nýjast á Local Suðurnes

Minningarathöfn á Reykjanesbraut í kvöld

Reykjanesbraut verður lokuð frá hringtorgi við Fitjar og að hringtorgi við Grænás í kvöld, vegna vegna minningarathafnar um Jóhannes Hilmar Jóhannesson, sem lést í umferðaslysi á Reykjanesbraut þann 7. júlí síðastliðinn. Þá verður Hafnavegi lokað við Flugvallarveg. Hjáleiðir verða um Ásbrú og Njarðarbraut á meðan á minningarathöfninni stendur, en hún hefst klukkan 20.

Bifhjólamenn munu að mæta að gatnamótunum kl. 19:45, en athöfnin hefst kl. 20, eftir athöfn verður boðið upp á kaffiveitingar í félagsheimili bifhjólamanna, Hreiðrinu, í boði Bifhjólaklúbbsins Arna.

Nánari upplýsingar um lokun Reykjanesbrautar og minningarathöfnina má finna hér.