Birta brot úr sögu Keflavíkur 1949-1994

Sögumolar úr sögu Keflavíkur verða á næstunni birt á vef Byggðasafns Reykjanesbæjar, en Árni Daníel Júlíusson, sagnfræðingur, sem ráðinn var til að rita sögu Keflavíkur 1949-1994 um sîðustu áramót stendur að birtingunni.
Árni Daníel stundaði sagnfræðinám við Háskóla Íslands frá 1984 og lauk þaðan MA-námi 1991. Árið 1993 hóf hann doktorsnám við Kaupmannahafnarháskóla og lauk þaðan doktorsprófi 1997. Þá hóf hann ásamt fleirum vinnu að því að byggja upp ReykjavíkurAkademíuna og sat í fyrstu stjórn hennar 1997-1999. Hann sinnir enn verkefnum við ReykjavíkurAkademíuna meðfram starfi sínu sem sérfræðingur við Háskóla Íslands.
Árni Daníel ritstýrði með öðrum og ritaði að hluta Íslenskan söguatlas 1.-3. bindi, sem út kom 1989-1993. Hann ritstýrði Landbúnaðarsögu Íslands 1.-4. bindi sem kom út 2013, og ritaði þar 1. og 2. bindið.
Árni Daníel mun öðru hvoru miðla sögumolum á vef Byggðasafnsins.
Með því að smella hér opnast vefur Byggðasafns Reykjanesbæjar
Mynd: Byggðasafn Reykjanesbæjar