Nýjast á Local Suðurnes

Alvarleg líkamsárás til rannsóknar hjá lögreglu

Lögreglan á Suðurnesjum hefur til rannsóknar alvarlega líkamsárás sem átti sér stað í umdæminu snemma að morgni nýársdags þar sem aðili var stunginn með hníf. Fórnarlambið var flutt samstundis á sjúkrahús og gerandi var handtekinn.

Ekki er vitað um ástand þess sem fyrir árásinni varð, en samkvæmt upplýsingum frá lögreglu miðar rannsókn málsins vel.