Nýjast á Local Suðurnes

Minja- og sögufélag Grindavíkur hlýtur Menningarverðlaunin 2017

Minja- og sögufélag Grindavíkur hlýtur Menningarverðlaun Grindavíkur 2017 en verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn í Grindavíkurkirkju á laugardaginn. Frístunda- og menningarnefnd Grindavíkur útnefnir annað hvert ár handhafa Menningarverðlauna Grindavíkur og annað hvert ár bæjarlistamann Grindavíkur, samkvæmt Menningarstefnu Grindavíkurbæjar. Frá þessu er greint á vef Grindavíkurbæjar.

Auglýst er eftir tilnefningum um einstaklinga eða félagasamtök sem til greina koma að hljóta tilnefninguna Menningarverðlaun og sæmdarheitið bæjarlistamaður. Frístunda- og menningarnefnd fer yfir tillögur og verðlaunin eru afhent í tengslum við setningu Menningarviku ár hvert.

Í ár komst nefndin að samhljóma niðurstöðu um handhafa menningarverðlauna 2017. Minja- og Sögufélag Grindavíkur hlýtur verðlaunin í ár. Félagið vinnur að stórum verkefnum og einkennist starf félagsmanna af miklum metnaði, umhyggju fyrir sögu Grindavíkur og varðveislu þeirra minja sem hér er að finna. Félagið hefur eignast hina fornu verbúð Bakka og vinnur að því að gera húsið upp og færa til vegs og virðingar að nýju en þar láta félagsmenn ekki staðar numið og eiga í handraðanum hugmyndir og áætlanir sem spennandi verður að fylgjast með þegar þær verða að raunveruleika í vonandi náinni framtíð. Í félaginu býr mikill mannauður og félagið og félagsmenn verðugir handhafar Menningarverðlauna Grindavíkurbæjar árið 2017.

Eftirtaldir hafa verið útnefndir Bæjarlistamenn Grindavíkur:

2014 Halldór Lárusson
2016 Helga Krisjánsdóttir

Eftirtaldir hafa fengið Menningarverðlaun Grindavíkur undanfarin ár:

2010 Ómar Smári Ármannsson og Saltfisksetrið
2011 Bryggjubræður, Aðalgeir og Kristinn Jóhannssynir
2012 Þorbjörn hf.
2013 Einar Lárusson
2015 Harpa Pálsdóttir