Nýjast á Local Suðurnes

Stálmöstur vegna Suðurnesjalínu 2 kosta 170 milljónir króna

Fyrirtækið Metalogalva í Portúgal átti lægsta tilboðið í stálmöstur þriggja háspennulína Landsnets, Kröflulínu 4, Þeistareykjalínu 1 og Suðurnesjalínu 2, en alls bárust 15 tilboð í möstrin og voru 12 þeirra undir kostnaðaráætlun.

Samkvæmt vef Byggingar.is var útboði í möstur háspennulínanna þriggja skipt í þrjá hluta. Í þeim fyrsta voru Kröflulína 4 og Þeistareykjalína 1, Suðurnesjalína 2 var í hluta tvö og allar línurnar í þeim þriðja. Gátu bjóðendur boðið í útvegun á stáli fyrir hvorn hluta fyrir sig, eða báða saman. Alls bárust 15 tilboð, þar af 12 í báða hlutana en þrjú tilboð bárust bara í útvegun stáls í Suðurnesjalínu 2.

Tilboðin voru opnuð hjá Landsneti fyrir helgi og reyndust 12 þeirra undir kostnaðaráætlun. Lægsta tilboðið átti Metalogalva í Portúgal sem bauð tæpar 3,2 milljónir evra í báða hlutana, eða um 59% af kostnaðaráætlun.

11.04.2016-Kröflulína-4-og-Þeistareykjalína-1-Suðurnesjalína-2