Nýjast á Local Suðurnes

Kynna stefnumótun HSS á íbúafundi

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja mun standa fyrir íbúafundi þann 5. júní næstkomandi þar sem kynnt verður stefnumótun fyrir stofnunina með það að markmiði að veita framúrskarandi fyrsta og annars stigs heilbrigðisþjónustu.

Þetta kemur fram í pistli frá forstjóra stofnunarinnar á vef HSS.. þar segir að Ætlunin sé að móta stefnu HSS til næstu þriggja ára. Í stefnunni verður greint frá markmiðum ásamt almennum áherslum og hvernig þeim verðu náð.

Við munum gera grein fyrir mælikvörðum og við miðum sem verða lögð til grundvallar mati á árangri starfseinnar. Stefnan verður síðan staðfest af heilbrigðisráðherra og kynnt síðar á árinu, segir í pistlinum.

Markmiðið er að byggja upp sterka ímynd og efla traust til stofnunarinnar. Til að svo megi verða er mikilvægt að vita skoðanir íbúa á því hvað HSS gerir vel, hvað má gera betur og hvaða áherslur íbúar vilja að verði í starfseminni næstu árin.

Fundurinn verður haldinn þann 5. Júní klukkan 17:00-18:30 i Hljómahöllinni og er fólk beðið að skrá þátttöku á fundinn fyrir 3. Júní með því að senda tölvupóst á netfangið stefnumotun@hss.is. með upplýsingum um nafn, búsetu og aldur í tölvupóstinum.