Geirmundur fyrir dómi: “Fól undirmanni mínum að framkvæma þau mál sem hér er getið”
Aðalmeðferð máls gegn Geirmundi Kristinssyni, fyrrverandi sparisjóðsstjóra Sparisjóðsins í Keflavík fer fram í Héraðsdómi Reykjaness í dag. Geirmundur er ákærður fyrir tæplega 800 milljón króna umboðssvik með því að hafa misnotað aðstöðu sína hjá sparisjóðnum með lánveitingum til einkahlutafélaga.
Geirmundur tjáði sig að um þær sakir sem á hann eru bornar, áður en skýrslutökur yfir honum hófust fyrir dómi og sagði meðal annars að ferlið hafi tekið úr hófi langan tíma.
„Ég fól undirmanni mínum að framkvæma þau mál sem hér er getið, sem og hann gerði. Ég kom því ekkert nánar að þessu enda var það ekki í mínum verkahring,“ sagði Geirmundur. Bætti hann við að tekið hefði verulega á hann að sitja undir þessum ásökunum í fleiri ár, enda teldi hann að ferlið hefði tekið úr hófi langan tíma.
Baðst hann undan frekari spurningum varðandi ákærurnar, þar sem hann væri áður búinn að svara spurningum lögreglu. Geirmundur neita sök í málinu.
Mbl.is greinir frá og er ítarlega frétt að finna á miðlinum, þar sem forsaga málsins er meðal annars rakin.