Samningslaus Sindri semur við Grindavík
![grindaviknyrleikmadur](https://i0.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2020/02/grindaviknyrleikmadur.jpg?resize=620%2C264)
Inkassolið Grindavíkur í knattspyrnu hefur skrifað undir tveggja ára samning við miðjumanninn Sindra Björnsson sem var samningslaus en hann var síðast hjá með samning við Val.
Sindri verður 25 ára í ár og er uppalinn Leiknismaður úr Reykjavík. Hann hefur spilað 21 landsleik með unglingalandsliðum Íslands og spilað 125 leiki í meistaraflokki og skorað í þeim 18 mörk.