Nýjast á Local Suðurnes

Einungis hægt að sækja um byggingarleyfi með rafrænum hætti

Frá og með 1. nóvember 2019 verður einungis hægt að sækja um byggingarleyfi með rafrænum hætti hjá Reykjanesbæ. Umsækjendur þurfa að skrá sig inn á íbúagáttina Mitt Reykjanes. Til þess er að hægt að nýta Íslykil eða rafræn skilríki í síma.

Á undanförnum misserum hefur verið unnið að aukinni rafvæðingu stjórnsýslu Reykjanesbæjar til að gera þjónustuna enn skilvirkari með því að fækka milliliðum. Rafrænar umsóknir eru liðir í þeirri vinnu, segir í tilkynningu.