Nýjast á Local Suðurnes

Stöðvaður með öryggismál í ólagi – Hinkraði með lögreglu eftir barnabílstól

Lögreglan á Suðurnesjum hafði á dögunum afskipti af ökumanni sem virti ekki stöðvunarskyldu. Ofan í kaupið var viðkomandi með barn í bílnum sem sat í aftursæti bifreiðarinnar án sérstaks öryggisbúnaðar.

Biðu lögreglumenn eftir því að kunningi ökumanns kæmi með barnabílstól og að búið væri tryggilega um barnið í honum. Að því loknu var ökumanni frjálst að halda för sinni áfram.