Nýjast á Local Suðurnes

Keflavík úr leik og áfram í Maltbikarnum

Keflavíkurlið karla og kvenna léku í Maltbikarnum í körfuknattleik í dag. Kvennaliðið fór óblíðum höndum um KR-stúlkur á meðan karlaliðið tapaði gegn sterkum Haukum.

Sigur Keflavíkurstúlkna á KR var öruggur, en lokatölurnar urðu 99-79, en aðeins var jafnræði með liðunum í fyrsta leikhluta sem lauk 24-24. Keflvíkingar tóku svo öll völd á vellinum í öðrum leikhluta og var staðan í hálfleik 60-41. KR-ingar náðu að klóra aðeins í bakkann í fjórða leikhluta, en það dugði ekki til og unnu Keflvíkingar að lokum 99-79.

Brittanny Dinkins var stigahæst Keflvíkinga með 21 stig og Birna Valgerður Benónýsdóttir kom næst með 16 stig.

Heimamenn í Keflavík byrjuðu betur gegn Haukum og komust mest í 10 stiga forystu í fyrsta leikhluta, en Haukar klóruðu í bakkann og var staðan 23-20 að honum loknum. Haukar komust í almennilega í gang í þeim næsta og var staðan í hálfleik 41-46. Keflavíkurdrengir mættu svo grimmir til leiks í þriðjaleikhluta og náðu eins stigs forystu að honum loknum. Haukar mættu svo grimmir í síðasta leikhlutann og kláruðu leikinn með níu stiga sigri 74-83.

Guðmundur Jónsson var stigahæstur Keflvíkinga með 22 stig og Stanley Robinson kom næstur með 17 stig, en hann tók einnir 10 fráköst.