Guðmundur Auðun keppir um milljónir króna á Stórbokka 2016

Pókerspilarinn Guðmundur Auðun Gunnarsson mun taka þátt í pókermótinu Stórbokka 2016, sem haldið verður á Grand Hótel í Reykjavík í dag. Stórbokki er svokallað “High Roller” mót og er þáttökugjaldið 115.000 krónur og ef spilarar verða svo óheppnir að falla úr leik verður hægt að kaupa sig inn í mótið aftur fyrir 105.000 krónur. Búist er við að heildarverðmæti vinninga verði allt að 10 milljónir króna.
Guðmundur sagðist í samtali við Suðurnes.net vera vel undirbúinn fyrir mótið:
“Það er svona svipað með þetta mót og Íslandsmótið, þetta tekur á bæði líkamlega og andlega. Maður þarf að vera úthvíldur til þess að geta tekið réttar ákvarðanir í erfiðum aðstæðum.
Þetta verður erfitt mót en skemmtilegt – Og að sjálfsögðu stefnir maður á sigur.” Sagði Guðmundur Auðun
Þetta annað árið í röð sem Pókersamband Íslands stendur fyrir mótinu, sem laðar að sér bestu spilara landsins, í fyrra var mótið haldið fyrir luktum dyrum en í þetta sinn er öllum velkomið að mæta á svæðið og fylgjast með.
Formleg dagskrá hefst klukkan 12 þegar Stórbokkar sameinast í fordrykk í Torfastofu. Eftir það verður sameiginlegur málsverður og hefst mótið svo klukkan 14. Spilað verður á 8 manna borðum og verða þátttakendur 48 talsins.
Guðmundur Auðun er einn af bestu pókerspilurim landsins, en hann endaði í 9. sæti á Íslandsmeistaramótinu í póker sem fram fór í nóvember síðastliðnum, en um 130 spilarar tóku þátt í mótinu sem fram fór í Borgrnesi.
Eins og áður sagði hefst mótið klukkan 14 og er öllum frjálst að mæta á Grand Hótel Reykjavík og fylgjast með.
Hér fyrir neðan má sjá myndband frá mótinu sem haldið var á síðasta ári.