Borgunarbikarinn: Grindavík og Víðir áfram – Keflavík úr leik

Grindavíkingar lögðu KA 1-0 í 32-liða úrslitum Borgunarbikars karla í knattspyrnu í kvöld en leikið var í Grindavík. Björn Berg Bryde gerði eina mark leiksins í kvöld en það kom undir lok fyrri hálfleiks.
Keflvíkingar féllu úr leik eftir 1-2 tap gegn Fylki á Nettó-vellinum í Keflavík. Þetta var fyrsti sigur Fylkismanna í sumar. Fylkir komst í 0-1 á 37. mínútu og þeir tvöfölduðu svo forystuna tæplega 5 mínútum síðar og staðan því 0-2 í leikhléi. Keflvíkingar voru mun öflugara liðið í síðari hálfleik og náðu að skapa sér ágætis færi en þrátt fyrir það náðu þeir ekki að minnka muninn fyrr en á lokamínútu leiksins úr vítaspyrnu sem Magnús Sverrir Þorsteinsson skoraði úr.
Víðismenn eru eina 3. deildarliðið sem eftir er í keppninni, en liðið lagði Sindra að velli á Nesfisk-vellinum í Garði, eftir framlengingu. Víðismenn skoruðu tvö mörk gegn engu Sindramanna. Helgi Þór Jónsson og Aleksandar Stojkovic skoruðu mörkin.