Vinna að lausn á strætómálum
Enn hefur ekki verið samið um strætóakstur á leiðum 89 og 55, en um er að ræða strætó sem gengur á milli Suðurnesja og höfuðborgarsvæðisins.
Þjónustan var boðin út á ný eftir að Hópferðafyrirtækið ABK (áður SBK) sagði upp þjónustusamningi við Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum (SSS) um akstur milli höfuðborgarinnar og Suðurnesja í október síðastliðnum og tekur uppsögnin gildi um áramót. Fyrirtækið sem þá hét SBK mun hafa gert alvarleg mistök við útreikninga þegar útboð á þjónustunni fór fram og hefur fyrirtækið þurft að greiða tugi milljóna króna á ári með akstrinum.
Samkvæmt heimildum Suðurnes.net bárust nokkur tilboð í aksturinn, en Berglind Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri SSS, staðfesti í svari við fyrirspurn Suðurnes.net um málið að ekki hafi enn verið samið við verktaka um að taka þjónustuna að sér, en að málin ættu að skýrast á næstu dögum. Þá sagði Berglind að enn stæði til að skoða réttarstöðu SSS gagnvart SBK ehf., nú ABK ehf., begna samningsbrota.