Vilja eyða sprengjum vestan Keflavíkurflugvallar

Landhelgisgæsla Íslands hefur óskað eftir afstöðu Suðurnesjabæjar til fyrirhugaðrar staðsetningar sprengjueyðingar vestan Keflavíkurflugvallar.
Málið var rætt á fundi framkvæmda- og umhverfisráðs sveitarfélagsins sem tók jákvætt í erindið með fyrirvara um umhverismat framkvæmdarinnar og samþykki allra hagsmunaaðila sem erindið snertir.



















