Nýjast á Local Suðurnes

Viðvörun frá Vegagerðinni – Óveður á Grindavíkurvegi

Óveður er skollið á á nokkrum stöðum á landinu og meðal annars eru slæmar aðstæður til aksturs á Grindavíkurvegi, Kjalarnesi og Fróðarheiði, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni.

Óveður er á Grindavíkurvegi, samkvæmt vef Vegagerðarinnar, en þar stendur vindur nú í um 25 m/s, þvert á veginn á köflum. Á öðrum vegum með Suðurströndinni er greiðfært, en hálkublettir á útvegum.