Nýjast á Local Suðurnes

Vatn komið á Njarðvíkuræð

Vatni hefur verið hleypt á svokallaða Njarðvíkuræð, stofnæð hitaveitu frá Svartsengi til Fitja, en hún fór að hluta undir hraun. Fullur þrýstingur verður þó ekki kominn á lögnina fyrr en seinni part sunnudags.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá HS Orku, sem sjá má í heild hér fyrir neðan:

Aðgerðir dagsins við að tengja Njarðvíkuræðina, heitavatnslögnina frá Svartsengi til Reykjanesbæjar, tókust vel og nú streyma um 70 l/s í gegnum hana áleiðis í heitavatnstanka HS Orku á Fitjum. Enn sem komið er verður ekki séð að lekar séu á lögninni undir hrauninu. Þrýstingur verður aukinn hægt og rólega fram eftir kvöldi í samvinnu við HS Veitur þar til fullum afköstum verður náð.

Suðuvinnu lauk um þrjúleytið í dag og þá var strax hafist handa við að dæla rólega inn á lögnina til að sjá hvað hún þyldi. Óttast var að skemmdir hefðu orðið á þeim hluta hennar sem fór undir hraun auk þess sem hitabreytingar við inndælingu gátu valdið því að lögnin skryppi saman og tog kæmi á hana. Það gerðist ekki. Á þeim hluta lagnarinnar sem búið var að sanda og fergja eru vísbendingar um að hitastigið sé ekki mjög hátt miðað við aðstæður en lögnin var á tveggja metra dýpi áður en hraunið rann.

Ekki er sjálfgefið að aðgerð af þessum toga, við jafn krefjandi aðstæður og raun ber vitni, gangi áfallalaust fyrir sig. Það var þó reyndin í dag og ber að þakka það öruggum og vönduðum vinnubrögðum starfsmanna HS Orku og verktakanna HD Framtak og Ellerts Skúlasonar.