Finnur tekur tímabundið við sem forstjóri HS Orku
![rafmagn](https://i2.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2015/06/power-597169_640.jpg?resize=620%2C264)
Stjórn HS Orku hf. hefur að ósk fráfarandi forstjóra gert samkomulag um að flýta áður ákveðnum starfslokum og lætur hann formlega af störfum í vikunni. Stjórnin hefur falið Finni Beck, lögfræðingi félagsins, að gegna stöðu forstjóra tímabundið þar til nýr hefur verður ráðinn. Staða forstjóra HS Orku var sem kunnugt er auglýst til umsóknar í byrjun september. Ráðningarferli stendur yfir og er gert ráð fyrir að því ljúki á næstu vikum.
Finnur Beck hefur starfað sem aðallögfræðingur HS Orku frá árinu 2015 en var þar áður starfandi héraðsdómslögmaður og einn eigenda á Landslögum lögmannsstofu. Finnur útskrifaðist með ML gráðu úr lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2010 en hann er jafnframt með BA gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands.