Nýjast á Local Suðurnes

Mikilvægt að íbúar séu meðvitaðir um hvort vátryggingavernd þeirra sé í lagi

Innri - Njarðvík

Viðlagatrygging Íslands (VTÍ ) fundaði í síðustu viku með nokkrum forsvarsmönnum Reykjanesbæjar um vátryggingavernd mannvirkja í eigu sveitarfélagsins. Rætt var mikilvægi þess að skráð verðmæti þeirra sé uppfært reglulega til að tryggja að eignirnar séu vátryggðar að fullu áður en vátryggingaratburður á sér stað.

Að sögn Huldu Ragnheiðar Árnadóttur hjá VTÍ er heimsóknin liður í átaki stofnunarinnar til að bæta þekkingu á hlutverki hennar og skráningu opinberra mannvirkja í eigu sveitarfélaganna sem vátryggð eru hjá VTÍ.

„Á þessum fundi ræddum við einnig mikilvægi samvinnu sveitarfélagsins og VTÍ til að stuðla að markvissri endurbyggingu sveitarfélagsins ef til tjónsatburðar kemur.“

Hulda Ragnheiður segir ekki síður mikilvægt að íbúar séu meðvitaðir um hvort  vátryggingavernd þeirra sé í lagi. Fram kom á fundinum að ef innbú er vátryggt almennri lausafjártryggingu hjá vátryggingafélagi rennur hluti iðgjaldsins til VTÍ og tryggir þannig vátryggingavernd innbúsins komi til tjóns af völdum jarðskjálfta, eldgosa, vatns-, aur- eða snjóflóða skv. skilgreiningum laga um VTÍ (55/1992).

„Ef slík vátrygging er ekki til staðar greiðast engar bætur vegna innbús ef til tjóns kemur. Allar fasteignir eru hins vegar skyldu vátryggðar gegn náttúruhamförum og eru iðgjöldin innheimt samhliða brunatryggingum fasteigna hjá almennu vátryggingafélögunum.“