sudurnes.net
Finnur tekur tímabundið við sem forstjóri HS Orku - Local Sudurnes
Stjórn HS Orku hf. hefur að ósk fráfarandi forstjóra gert samkomulag um að flýta áður ákveðnum starfslokum og lætur hann formlega af störfum í vikunni. Stjórnin hefur falið Finni Beck, lögfræðingi félagsins, að gegna stöðu forstjóra tímabundið þar til nýr hefur verður ráðinn. Staða forstjóra HS Orku var sem kunnugt er auglýst til umsóknar í byrjun september. Ráðningarferli stendur yfir og er gert ráð fyrir að því ljúki á næstu vikum. Finnur Beck hefur starfað sem aðallögfræðingur HS Orku frá árinu 2015 en var þar áður starfandi héraðsdómslögmaður og einn eigenda á Landslögum lögmannsstofu. Finnur útskrifaðist með ML gráðu úr lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2010 en hann er jafnframt með BA gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands. Meira frá SuðurnesjumTveir nýir framkvæmdastjórar til HS OrkuEinar nýr framkvæmdastjóri FMS – Ragnar og Þórður hætta eftir áratuga starfUmdeildur kennari ráðinn við StapaskólaBæjarstjóri biður Viðskiptablaðið afsökunar – Ársreikningarnir fundnirSveinn ráðinn í stöðu byggingarfulltrúaOrkusölusamningur HS Orku og Norðuráls ekki lengur í gildiÓsk um stækkun hótels hafnað eftir andmæli nágrannaTómas Már nýr forstjóri HS OrkuGuðjón nýr upplýsingafulltrúi IsaviaFyrrum leikmaður Víðis þjálfar lið í eigu Jamie Vardy