Nýjast á Local Suðurnes

Þróttarar í samstarf við Blush – Vilja fjölga iðkendum

Þrátt fyrir öra fjölgun íbúa í Sveitarfélaginu Vogum á undanförnum árum hefur börnum þess fækkað og bitnar það á íþróttastarfi í sveitarfélaginu. Til að sporna við þessari þróun hefur Ungmennafélagið Þróttur útnefnt september Ástarmánuð Þróttar og hvetur íbúa til að leggja sérstaka áherslu á að njóta ásta(rinnar) í þeim mánuði.

„Við finnum heldur betur fyrir þessari fækkun þrátt fyrir meiriháttar gott starf og hugsað er vel um okkar iðkendur. Það voru vel yfir 200 nemendur í grunnskólanum á sínum tíma en í dag eru ekki nema 160 nemendur. Þrátt fyrir þessa fækkun hefur íbúum fjölgað á sama tíma. Félagið hefur ekki látið slá sig út af laginu þrátt fyrir þetta og heldur úti metnaðarfullu starfi. Markmið okkar með þessu átaki er að fjölga iðkendum og hvetja íbúa til að eiga notalega stund saman í september. Við munum svo vonandi taka á móti fleiri iðkendum 2025,“ segir Marteinn Ægisson, framkvæmdastjóri Þróttar í Vogum, í samtali við dv.is.

Þróttarar hafa fengið hjálpartækjaverslunina Blush með sér í lið en verslunin veitir íbúum Voga 10% afslátt af vörum sínum í Ástarmánuðinum – eins og gefur að skilja gildir afslátturinn ekki af getnaðarvörnum. Öll börn sem fæðast í maí, júní og júlí fá svo frítt í íþróttaskóla barna 2025 til 2027, segir í frétt DV af málinu.