Nýjast á Local Suðurnes

Tekinn með snyrtivörur og tebollu

Karlmaður sem staðinn var að hnupli í verslun í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum játaði þjófnaðinn þegar lögreglumenn ræddu við hann. Það sem hafði freistað hans voru tvær dósir af Nivea næturkremi, ein dós af dagkremi sömu tegundar, eitt box af liðverkjatöflum og ein tebolla.

Maðurinn skilaði varningnum, sem var að verðmæti á níunda þúsund krónur, í réttar hendur.