Nýjast á Local Suðurnes

Reykjanesbær kemur jólatrjám til förgunar

Umhverfismiðstöð Reykjanesbæjar býður upp á hirðingu lifandi jólatrjáa frá íbúum og kemur þeim til förgunar.

Í tilkynningu segir að hringja þurfi í síma 420 3200 og óska eftir þjónustunni, sem verður á boðstólnum dagana 6. – 10. janúar. Íbúar þurfa að koma trénu fyrir utanhúss á sýnilegum stað vilji þeir nýta þjónustu Umhverfismiðstöðvar. Vinsamlegast takið tillit til slæmrar vindaspár þessa daga og festið tréð ef hætta er á að það fjúku burt.

Umhverfismiðstöð Reykjanesbæjar er opin kl. 07:00 – 16:00 mánudaga til fimmtudaga og kl. 07:00 – 12:30 föstudaga.