Nýjast á Local Suðurnes

Laun bæjarfulltrúa og bæjarráðsmanna Reykjanesbæjar hækka um 17%

Bæjarráð Reykjanesbæjar samþykkti á fundi sínum í dag breytingar á launum kjörinna fulltrúa. Föst laun bæjarfulltrúa og bæjarráðsmanna hækka miðað við í launavísitölu frá ársbyrjun 2013 í samræmi við það rammasamkomulag sem í gildi er á almennum vinnumarkaði, að frádregnum þeim hækkunum sem orðið hafa á tímabilinu og nemur sú hækkun 17.48%.

Þá munu kjör þeirra sem sitja í nefndum á vegum sveitarfélagsins hækka með hliðsjón af hækkun kjararáðs fyrir hvern setinn fund.

Kristinn Þór Jakobsson legði fram tillögu um að áheyrnarfulltrúar fái föst laun eins og bæjarráðsmenn eins og gert sé í vel frestum sveitarfélögum. Meirihluti bæjarráðs greiddi atkvæði gegn tillögunni en fulltrúar Sjálfstæðisflokks sátu hjá.