Nýjast á Local Suðurnes

Óvenju mikið um hnupl úr verslunum – Stolið fyrir tugi þúsunda á innan við viku

Óvenju mikið hefur verið um hnupl úr verslunum í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á síðustu dögum. Í gær var tilkynnt um tvo aðila sem höfðu tekið kjötvörur að verðmæti rúmlega 6000 kr. í verslun og stungið í bakpoka. Þeir voru handteknir og færðir á lögreglustöð. Sl. föstudag hafði lögregla afskipti af tveimur öðrum einstaklingum sem höfðu hnuplað matvöru úr annari verslun að andvirði rúmlega 10. 000 kr.

Áður höfðu tvö þjófnaðarmál komið upp. Í öðru tilvikinu var um að ræða vörur að andvirði tæplega 15.000 kr. og í hinu varning fyrir ríflega 6000 kr.