Nýjast á Local Suðurnes

Ólafur ráðinn sveitarstjóri á Tálknafirði

Sveitarstjórn Tálknafjarðarhrepps samþykkti í gær að ráða Ólaf Þór Ólafsson sem sveitarstjóra. Hann mun koma til starfa í lok mars og er ráðinn til loka núverandi kjörtímabils eða út júní 2022.

Ólafur Þór er 47 ára stjórnsýslufræðingur, kennari og tónlistarmaður sem á ættir að rekja til sunnanverðra Vestfjarða. Hann er með áralanga og fjölbreytta reynslu af starfi og stjórnsýslu sveitarfélaga, var fyrst kjörinn bæjarfulltrúi í Sandgerðisbæ árið 2002 og var forseti bæjarstjórnar þess sveitarfélags 2010 til 2018. Hann hefur setið í stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, var formaður þess um tíma og hefur verið formaður Svæðisskipulagsnefndar Suðurnesja frá upphafi. Frá árinu 2018 hefur hann verið formaður bæjarráðs Suðurnesjabæjar. Ólafur Þór átti um tíma sæti í stjórn Isavia og situr nú í stjórn Atvinnuþróunarfélags Keflavíkurflugvallar, Kadeco. Að auki hefur hann komið að ýmsum trúnaðarstörfum í samstarfi sveitarfélaga bæði á lands- og svæðisvísu. Þá hefur hann starfað sem stjórnandi hjá Sandgerðisbæ, Hafnarfjarðarbæ og Sveitarfélaginu Vogum og var í nokkur ár forstöðumaður Fjölsmiðjunnar á Suðurnesjum. Ólafur Þór mun láta af trúnaðarstörfum á vegum Suðurnesjabæjar þegar hann kemur til starfa á Tálknafirði.

Sveitarstjórn Tálknafjarðarhrepps lýsir yfir ánægju með að fá svo reyndan sveitarstjórnarmann til liðs við sig og væntir mikils af störfum Ólafs Þórs, segir í tilkynningu.