Nýjast á Local Suðurnes

Nýjar reglur varðandi heimsóknir á HSS

Nýjar reglur hafa tekið gildivarðandi heimsóknir á sjúkradeild og ljósmæðravakt HSS frá og gilda reglurnat frá og með deginum í dag, 22. desember 2021

Sjúkradeild (D-deild)
Engar heimsóknir eru leyfðar nema með sérstökum undantekningum frá og með hádegi í dag 22. desember fram til hádegis 24. desember.

Aðfangadag, jóladag og annan jóladag verða leyfðar heimsóknir eins gests til hvers sjúklings í 1 klst á tímabilinu kl. 14-18.

Farið er fram á að viðkomandi sé fullbólusettur eða hafi fengið COVID á síðastliðnum sex mánuðum. Heimsóknargestir skulu nota einnota grímu en þær eru aðgengilegar við inngang á deild.

Heimsóknir barna undir 12 ára aldri eru óheimilar nema undir sérstökum kringumstæðum og þá aðeins með leyfi stjórnenda viðkomandi deilda.

Ljósmæðravakt
Heimsóknir annarra en maka eru óheimilar til kvenna á ljósmæðravakt.