Hefja gjaldtöku á hleðslustöðvum fyrir rafbíla
![orka](https://i0.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2017/12/orka.jpg?resize=620%2C264)
Orka náttúrunnar mun hefja gjaldtöku á hleðslustöðvum sínum fyrir rafbíla þann 1. febrúar næstkomandi og mun mínútan kosta 39 krónur.
Fyrirtækið mun í lok árs 2018 reka yfir 30 stöðvar um allt land, en fyrirtækið rekur eina slíka á Fitjum í Reykjanesbæ. Í tilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að algengur hraðhleðslutími hér á landi sé upp undir 20 mínútur, en að erlendis sé tíminn um 10-12 mínútur. Af þeim meðaltímaramma má ráða að hleðsluskotið geti kostað rafbílaeigendur á bilinu 400-500 krónur.