Nota veðurskilyrðin til æfinga á aðflugi í Hvassahrauni

Boeing 757-256 flugvél frá Icelandair tók á loft frá Keflavíkurflugvelli klukkan 13:36 í dag í þeim tilgangi að æfa aðflug að mögulegu flugvallarsvæði í Hvassahrauni. Vélin hefur, þegar þetta er ritað, tekið þrjár aðflugsstefnur að Hvassahrauni og flogið allt niður í um 1100 fet, eða um 330 metra hæð frá jörðu.
Icelandair hefur sem kunnugt er viljað kanna til hlítar möguleikann á að reisa nýjan innanlandsflugvöll í Hvassahrauni með möguleika á millilandaflugi, meðal annars með tilraunaflugi á svæðinu. Staðsetningin er ein af nokkrum sem nefnd var í Rögnuskýrslunni svokölluðu en nefndin kannaði mögulegar staðsetningar á uppbyggingu flugvalla á höfuðborgarsvæðinu.