Nýjast á Local Suðurnes

Neyðarstjórn yfirfer viðbragðsáætlanir

Neyðarstjórn HS Orku yfirfer nú sviðsmyndir og viðbragðsáætlanir vegna jarðhræringa í Svartsengi og nágrenni og er í reglulegum samskiptum við Veðurstofuna og stjórnstöð almannavarna vegna þessa.

Nokkuð hefur hægt á landrisi síðustu daga, samkvæmt upplýsingum Veðurstofunnar, en enn er beðið gagna úr Sentinel gervitungli til að fá skýrari mynd af stöðu mála á Reykjanesi. Samfelldar GPS mælingar sýna áframhaldandi merki um landris á svæðinu norðvestan við fjallið Þorbjörn og fyrstu líkanreikningar benda til að kvika sé að safnast fyrir á um fjögurra kílómetra dýpi, segir í tilkynningu frá HS Orku.

Engar breytingar virðast hafa orðið á borholum hjá HS Orku en fylgst er vandlega með gangi máli í góðu samráði við Veðurstofuna og stjórnstöð almannavarna. Hafa ber hugfast að aðstæður geta þó breyst hratt og er fyrirtækið því við öllu búið. Vísindamenn Veðurstofunnar fara á svæðið nærri Svartsengi og Þorbirni í dag til að framkvæma gasmælingar.