sudurnes.net
Neyðarstjórn yfirfer viðbragðsáætlanir - Local Sudurnes
Neyðarstjórn HS Orku yfirfer nú sviðsmyndir og viðbragðsáætlanir vegna jarðhræringa í Svartsengi og nágrenni og er í reglulegum samskiptum við Veðurstofuna og stjórnstöð almannavarna vegna þessa. Nokkuð hefur hægt á landrisi síðustu daga, samkvæmt upplýsingum Veðurstofunnar, en enn er beðið gagna úr Sentinel gervitungli til að fá skýrari mynd af stöðu mála á Reykjanesi. Samfelldar GPS mælingar sýna áframhaldandi merki um landris á svæðinu norðvestan við fjallið Þorbjörn og fyrstu líkanreikningar benda til að kvika sé að safnast fyrir á um fjögurra kílómetra dýpi, segir í tilkynningu frá HS Orku. Engar breytingar virðast hafa orðið á borholum hjá HS Orku en fylgst er vandlega með gangi máli í góðu samráði við Veðurstofuna og stjórnstöð almannavarna. Hafa ber hugfast að aðstæður geta þó breyst hratt og er fyrirtækið því við öllu búið. Vísindamenn Veðurstofunnar fara á svæðið nærri Svartsengi og Þorbirni í dag til að framkvæma gasmælingar. Meira frá SuðurnesjumFjórtan skjálftar við Grindavík – Enn greinilegt landris í gangiYfir þúsund skjálftar við GrindavíkHraunrennsli og gaslosun aukastDregið úr skjálftavirkni og ekkert landrisHröðun á landrisi við Litla HrútÁrsreikningar Reykjanesbæjar finnast ekki – “Eru sennilega til einhvers staðar”Vöntun á dagforeldrum í GrindavíkÍslenskir farþegar Air Berlin: “Vissum að eitthvað væri að þegar við fengum ekki [...]