Morgunskjálftinn var 4,6 að stærð
Nú klukkan 08:50 var skjálfti, 4.6 að stærð, rétt austan við Fagradalsfjall á því svæði þar sem virknin við suðurenda kvikugangsins hefur verið sem mest.
Nokkuð mikil smáskjálftavirkni hefur verið á svæðinu síðan í gærkvöld.