Nýjast á Local Suðurnes

Lentu farþegaflugvél á Keflavíkurflugvelli eftir að farþegi steig á plasthníf

Lenda þurfti flugvél frá Brithis Airways á Keflavíkurflugvelli um helgina vegna slyss sem einn farþeganna varð fyrir um borð. Hafði viðkomandi verið að athafna sig á gangi vélarinnar þegar hann steig á plasthníf á gólfinu og féll aftur fyrir sig.

Maðurinn kenndi eymsla í mjöðm og var fluttur með sjúkrabifreið til aðhlynningar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Flugvélin sem var á leið frá Seattle til London hélt svo för sinni áfram til áfangastaðar.