Lenti á KEF eftir að hríðir hófust hjá óléttri konu
Flug American Airlines á leiðinni frá Heathrow til Chicago í Bandaríkjunum þurfti að stoppa á Keflavíkurflugvelli eftir að hríðir hófust hjá óléttri konu.
Frá þessu er greint á vef fréttablaðsins, en ekki er nánar að frétta af móður og barni. Umrædd vél var í rúma tvo tíma á Keflavíkurflugvelli áður en hún fór af stað á ný.