Nýjast á Local Suðurnes

Grindavíkurbær vill bæta 4-6 íbúðum við Víðihlíð

Bæjarráð Grindavíkurbæjar hefur samþykkt að skipa verkefnishóp sem hafi það verkefni að leggja fram tillögu og hönnun á 4-6 íbúða viðbyggingu við Víðihlíð. Í Víðihlíð er rekin hjúkrunardeild fyrir aldraða og er þar pláss fyrir 20 skjólstæðinga.

Á næsta fundi bæjarráðs verður verkefni nefndarinnar skilgreint og fulltrúar tilnefndir. Í hópnum verði tveir fulltrúar meirihluta, einn fulltrúi minnihluta, einn fulltrúi eldri borgara og einn fulltrúi starfsmanna Miðgarðs. Skipaður verður verkefnisstjóri með hópnum og ráðstafað fjárheimildum til greiðslu nefndarlauna og hönnunar.