Kókaín virðist flæða í gegnum flugstöðina – Þrjú mál á mjög skömmum tíma

Tollverðir í Leifsstöð stöðvuðu Íslenskan karlmann á þrítugsaldri með rúmlega kíló af kókaíni að kvöldi fimmtudagsins 5. september síðastliðins. Kókaínið fannst í ferðatösku mannsins auk þess sem hann var með fíkniefni í smelluláspoka í buxnavasa ofan í töskunni. Frá þessu er greint á vef RÚV.
Maðurinn sem var að koma frá Barselóna á Spáni var úrskurðaður í gæsluvarðhald og hefur verið haldið í einangrun síðan. Í gæsluvarðhaldsúrskurðinum yfir manninum kemur fram að rannsaka þurfi aðdraganda ferðar hans hingað og tengsl við hugsanlega vitorðsmenn á Íslandi og erlendis. Fleiri hafa þó ekki verið handteknir.
Þetta er þriðja kókaínmálið sem kemur upp í Leifsstöð á mjög skömmum tíma. Í lok ágúst voru tvær erlendar konur handteknar við komuna frá Brussel með samtals rúmt kíló af kókaíni innvortis, sem þær síðan skiluðu af sér. Erlendur karlmaður var svo handtekinn 1. september við komuna frá Madrid með um 700 grömm af kókaíni innvortis.




















