Nýjast á Local Suðurnes

Kemur sér vel að hafa kraftakarl á staðnum þegar færa þarf bíl – Myndband!

Gúrkutíðin getur komið sér vel og gefið blaðamönnum tækifæri til að skoða aðeins léttari hluta tilverunnar og það skemmtilega sem veraldarvefurinn hefur upp á að bjóða.

Ein slík létt yfirferð á internetinu leiddi blaðamann Suðurnes.net að myndbandinu hér fyrir neðan, en það sýnir svo ekki verður um villst að það getur komið sér vel að hafa hraustmenni á staðnum þegar færa þarf sýningargrip, sem vegur nokkur hundruð kíló, um stað – Og ef menn eru ekki ánægðir með nýju staðsetninguna, þá má bara færa bílinn aftur!

Suðurnesjamaðurinn og hraustmennið Garðar “Gæi” Viðarsson tók sig til fyrir nokkrum misserum og aðstoðaði strákana á ónefndu bílaverkstæði við að færa forláta bifreið, með kraftana að vopni, eins og sést á meðfylgjandi myndbandi.