Nýjast á Local Suðurnes

Harðjaxlar moka glóandi hrauninu ofan af lögnum – Sjáðu myndirnar!

Undanfarna daga hafa verktakar unnið við að moka hrauni ofan af vatnslögn sem liggur til Grindavíkur í því skyni að meta tjón og kanna hvort viðgerð sé möguleg. Verkið hefur verið unnið með dyggri aðstoð Slökkviliðs Grindavikur sem hefur kælt glóandi hraunið.

Verkefnið hefur verið krefjandi en eftir því sem næst verður komist er vatnslögnin fundin undir hrauninu. Hér fyrir neðan má sjá myndir sem harðjaxlarnir frá Sveinsverk hafa tekið við framkvæmdirnar.