Nýjast á Local Suðurnes

Fyrstu skemmtiferðaskipin bóka hjá Reykjaneshöfn

Reykjaneshöfn hefur undanfarin ár unnið að markaðssetningu Reykjaneshafnar sem
ákjósanlegan viðkomustað fyrir smærri skemmtiferðaskip og virðist sú vinna vera að skila árangri því tvö skip hafa bókað aðstöðu.

Í ársskýrslu atvinnu- og hafnaráðs kemur fram að verkefnið sé „langhlaup“ enda séu slík skip bókuð þrjú til fimm ár fram í tímann. Starfsmaður Reykjaneshafnar sótti tvær söluráðstefnur erlendis þar sem hann kynnti þá aðstöðu sem hér er í boði og það skilaði tveimur bókunum, sem fyrr segir, en á næsta ári hefur eitt skemmtiferðaskip bókað komu sína og annað árið 2025.

Mynd: Wikipedia