Nýjast á Local Suðurnes

Dregið úr gosinu og landris við Svartsengi

Dregið hefur úr eld­gos­inu við Sund­hnúkagíga und­an­far­inn sól­ar­hring. Virkni í gíg­un­um er minni og mögu­lega er slokknað í minnstu gíg­un­um, samkvæmt tilkynningu frá Veðurstofu

Tekið er fram í tilkynningunni að gosórói hafi sömu­leiðis dvínað mjög hægt og ró­lega síðustu daga. Meg­in­hraun­straum­ur­inn renn­ur frá gíg­un­um fyrst í suður og beyg­ir síðan til vest­urs.

GPS-mæl­ing­ar síðustu daga gefa til kynna að land rísi í Svartsengi, en mun hæg­ara en áður en það bend­ir til þess að enn safn­ist upp kvika í söfn­un­ar­svæðið und­ir Svartsengi þótt það sé eld­gos í gangi, segir í tilkynningu.