Nýjast á Local Suðurnes

Flýttu framkvæmdum og opnuðu fyrir 300 ný bílastæði

Isavia hefur opnað fyrir 300 ný bílastæði við flugstöðina á Keflavíkurflugvelli sem hægt er að bóka á vef vallarins. Um er að ræða nýmalbikuð viðbótarstæði sem hægt var að bæta við eftir að framkvæmdum við þau var hraðað fyrir helgi eftir að tilkynnt var að stæðin við flugvöllin væru fullnýtt. 

Í tilkynningu frá Isavia segir að aðeins sé hægt að fá aðgang að þessum nýju stæðum ef þau eru bókuð fyrir fram á vef Keflavíkurflugvallar.

Ekki er ljóst hvenær þessi viðbótarstæði verða fullnýtt, segir einnig í tilkynningunni og er tekið fram að þegar það gerist og ekki er lengur hægt að bóka stæði á vef fyrirtækisins eru ferðalangar hvattir til að nýta sér aðra samgöngumáta til og frá Keflavíkurflugvelli.