Nýjast á Local Suðurnes

Fyrirkomulag Ljósanætur ákveðið eftir nokkra daga

Ljósanótt 2019 / Mynd: Reykjanesbær

Stýrihópur Ljósanætur í Reykjanesbæ fylgist grannt með þróun mála, varðandi Covi-bylgjuna sem nú gengur yfir landið, og hefur verið tekin ákvörðun um að bíða með frekari tilkynningar um fyrirkomulag eða afdrif hátíðarinnar þar til yfirvöld hafa gefið út næstu reglugerð um takmörkun á samkomum en núverandi reglugerð gildir til 13. ágúst. Þá skýrist hvort eða með hvaða hætti hægt verður að halda hátíðina.

Upplýsingar varðandi hátíðina verða birtar á vefsíðu hennar ljosanott.is og þar er hægt að nálgast ýmsar hagnýtar upplýsinga, segir í tilkynningu. Vilji fólk senda inn fyrirspurnir eða athugasemdir er bent á netfangið ljosanott@ljosanott.is