Flott útileguveður um helgina – Hæg breytileg átt og hiti allt að 16 stig
Veðurfræðingar á Veðurstofu Íslands búast við við þokkalegu ef ekki ágætisveðri um helgina, fremur hægum vindum, en þó má búast við skúrum á víða og dreif og sums staðar síðdegisdembum.
Spáin:
Hæg breytileg átt eða hafgola, en norðaustan 5-10 m/s við NV-ströndina á morgun. Skýjað með köflum og sums staðar skúrir, einkum inn til landsins síðdegis. Hiti 9 til 16 stig, hlýjast SV-lands.
Á laugardag og sunnudag:
Hæg breytileg átt eða hafgola. Skýjað með köflum og líkur á síðdegisskúrum í flestum landshlutum, einkum inn til landsins. Hiti 10 til 16 stig um hádaginn, en mun svalara að næturlagi.
Á mánudag (frídagur verslunarmanna) og þriðjudag:
Líkur á norðanátt með vætu öðru hvoru á N- og A-landi, en annars bjartviðri. Hiti 7 til 16 stig, hlýjast syðst.
Á miðvikudag og fimmtudag:
Líklega hægviðri, skýjað með köflum og milt veður, en skúrir á víð og dreif.
„Búist er við þokkalegu ef ekki ágætisveðri um helgina, fremur hægum vindum, en skúrum á víða og dreif og sums staðar síðdegisdembum. Hiti verður á bilinu 10 til 16 stig að deginum, en mun svalara að næturlagi, jafn vel næturfrost á stöku stað. Sumar tölvuspár gera ráð fyrir norðanátt á frídegi verslunarmanna með rigningu á Norður- og Austurlandi, en spáin ætti ekki að fæla neinn frá útivist né útilegum í náttúru landsins, sem skartar sínu fegursta um þessar mundir. Til að spilla ekki gleðinni er þó vissara að hafa hlý og vatnsvarin föt meðferðis þegar haldið er á vit ævintýranna,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands.