Nýjast á Local Suðurnes

Hlaut beinbrot eftir 5 metra fall við Skessuhelli

Mynd: Skjáskot Já.is

Ungur karlmaður var fluttur með sjúkrabíl á bráðamóttöku í Reykjavík eftir að hafa fallið um fimm metra við Skessuhelli í Reykjanesbæ í gær. Mikill viðbúnaður var á svæðinu vegna slyssins.

Frá þessu var greint í morgunfréttum Bylgjunnar, en þar var vitnað í frétt á vef Víkurfétta og sagt að sá slasaði hafi hlotið beinbrot og aðra áverka.